Efnisflokkur: Fréttir

Nú er góður tími til að senda okkur jarðveg

Ertu í ræktunarhugleiðingum ? Nú er góður tími til að senda okkur jarðveg.  Það er nauðsynlegt að vita hvernig ástandið á moldinni er þ.e hvernig áburður hentar þér. Fyrir áhugasama sendu tölvupóst beta@efnagreining.is eða hringdu s. 6612629


Breytt heimilisfang

Við höfum flutt frá Hvanneyri til Akranes Nýtt póstfang okkar er: Efnagreining ehf Lækjarflóa 10 A 300 Akranes Sími  661-2629. beta@efnagreining.is  


Jarðvegsefnagreiningar fyrir áhugafólk í garðrækt

Greinum stein- og snefilefni í jarðvegi allt árið um kring !        


Nýr vefur

Vorum að taka í notkun nýjan vef. Nú verður auðveldara fyrir okkur að setja inn fréttir og leyfa viðskiptavinum okkar að fylgjast með starfseminni.  


2. september 2016

Veljum íslenskt ! Heysýnin streyma að þessa dagana. Okkur sýnist að við séum að fá fleiri sýni en í fyrra í fulla greiningu (NORFOR)  Við hvetjum bændur til að velja okkar ódýru og góðu þjónustu. Við erum alltaf í innri skoðun og í fyrra ef við vorum í vafa með niðurstöður innheimtum við ekki fyrir greininguna. Forsendur þess að við getum boðið hey- og jarðvegsefnagreiningar á þessu lága verði er … Lesa meira


23. júní 2016

Nú þegar Efnagreining ehf er að hefja sína aðra heysýnatörn er við hæfi að horfa um öxl og reyna að meta síðasta starfsár. Ekki er hægt annað en að gleðjast yfir hve vel bændur tóku þjónustu okkar frá fyrstu stund. Okkur bárust 1118 heysýni alls, sem var umfram björtustu vonir. Fjármögnun fyrirtækisins tók mun lengri tíma en búist var við og þetta setti undirbúningsfasann í nokkurt uppnám og minnkaði það … Lesa meira


18. maí. 2016

Jarðvegssýni frá áhugafólki í garðrækt eru að tínast inn um þessar mundir. Eftirfarandi auglýsing liggur frammi í Garðheimum og einnig birtist hún í Garðyrkjuritinu sem kom út núna í apríl. Þú sem að ræktar garðinn þinn ! Áður en þú berð á þarftu að vita hvaða efni vantar í moldina þína. Var lítil uppskera úr kartöflugarðinum hjá þér ? Voru kartöflurnar ljótar ? Var grasflötin hjá þér gul ? Kom … Lesa meira


21. mars. 2016

Við höfum fengið nokkuð af heysýnum frá hestamönnum. Það nýjasta hjá okkur er að senda hestamönnum auk niðurstöðna úr NIR greiningum prótein, meltanleiki, tréni og orkuútreikningur, útreikninga á fóðurþörf af eigin heyi. Þannig að á niðurstöðublöðunum er reiknað út hvað þarf að gefa mikið á dag af heyinu, miðað við viðhaldsfóður, létta brúkun og síðan mikla brúkun, en þetta miðast við meðalþungan hest.   Heysýnatörnin byrjaði 1. september og gekk … Lesa meira